
Robert Mondavi er líklega sá einstaklingur sem hvað mest áhrif hafði á að koma Kaliforníuvínum á heimskortið á síðustu öld. Vínhúsið sem ber nafn hans er enn með þeim þekktustu og alltaf ánægjulegt að smakka Napa-vín þess.
Þetta Chardonnay-vín er gert þrúgum af nokkrum skilgreindum víngerðarsvæðum innan Napa – eða það sem kallað er AVA í Bandaríkjunum, aðallega þó af svalari svæðunum í suðurhluta dalsins þar sem hvítar þrúgur njóta sín betur.
Vínið hefur ljósgulan lit og í nefinu vantar ekki sætan og seiðandi hitabeltisávöxtinn, ananas, mangó og sæt vanilla með smá reyk gefur til kynna snertingu við eik. Þykkt og feitt í munni og þolir vel hvítt kjöt.
90%
5.999 krónur. Stórt og flott Nýjaheimsvín. Með humri, graflax og kalkún.
-
9