
Symington-fjölskyldan á alls 27 vínbúgarða í Douro, þar á meðal nokkur þekktustu húsin á borð við Graham’s og Dow’s og ræktar vín á alls rúmlega þúsund hektörum. Vínin frá búgörðunum eru notuð í flóknar blöndur en hvert þeirra á líka sína heimahöfn. Þannig er Quinta do Malvedos heimahöfn Graham’s og Quinta do Bonfim er kjarninn í Dow’s.
Nánari umfjöllun um portvín og hvað gerir þau einstök má lesa hér.
Late Bottled Vintage Port eða LBV eru árgangsvín sem eru síuð og sett á flösku fjögurra til sex ára gömul og þroskast þá ekki frekar. Yfirleitt eru þetta vín í mjög háum gæðaflokki sem eru notuð í LBV. Þau urðu fyrst til á sjötta áratug síðustu aldar þegar vínhúsin sátu uppi með meira magn af víni í Vintage-gæðum en þeim var heimilt að nota í Vintage. Hver árgangur af Vintage má ekki vera meira en 72 þúsund lítrar (sem er ein risastór áma) og því var afgangurinn notaður í LBV. Síðan hafa þessi vín öðlast fastan sess. Graham’s er eitt af klassísku portvínshúsunum og stíll hússins er fágaður og elegant. Nefið er heitt og sætt, bláberjasulta, sveskjur, súkkulaði, það er sætt og þægilegt í munni, þykkur, dökkur og kryddaður ávaxtamassi.
5.399 krónur. Portvín sem þessi eru frábær kaup miðað við verð. Frábært með eftirréttum, ekki síst ef það er súkkulaði í þeim. Með ostum eða bara eitt og sér til að njóta.
-
9