Pago de Carraovejas 2020

Hægt og rólega hefur Ribera del Duero verið að sækja í sig veðrið hér á landi síðustu áratugina. Það hefur kannski ekki orðið sprenging í fáanlegum Ribera-vínum eins og segja má að hafi gerst við vínin frá Rioja en reglulega tínast ný vín frá héraðinu til landsins og fleiri og fleiri vínunnendur átta sig á hvað þau geta verið frábær kaup.

Pago de Carraovejas er eitt af þekktari vínhúsum Ribera þótt það sé ekki með þeim elstu. Fyrsti árgangurinn sem kom á markað var 1991 en stofnandinn Jose María Ruiz hafði áður keppt fyrir hönd Spánar í alþjóðlegum keppnum vínþjóna og var að láta draum rætast með eigin vínhúsi. Vínin fylgja ekki hinu hefðbundna flokkunarkerfi þar sem tími í tunnu og flösku segir til um hvort það sé crianza eða reserva.

Meginþrúgan er auðvitað Tinto Fino (Tempranillo) en það er líka Cabernet Sauvignon í blöndunni og Merlot. Þetta er dökkt og mikið vin, liturinn er dimmrauður, út í fjólublátt og djúpur, Eikinn er framarlega og áberandi með reyk og kryddum, þar undir sultuð bláber og sólber, míneralískt. Kröftugt og þétt í munni, tannískt og mikið. Frábært nú þegar en þetta er vín sem má vel geyma í all nokkur ár. Carraovejas eru einmitt þekkt fyrir að þroskast ekki svo ósvipað og góð Bordeaux-vín. Ef þið opnið núna gerið það þá með góðum fyrirvara, gefið víninu tíma til að opna sig og umhellið helst.

100%

6.590 krónur, selt á tiuvin.is Þetta er frábært rauðvín fyrir verðið, Fínt með bragðmiklu nautakjöti eða villibráð.

  • 10
Deila.