The Chocolate Block 2021

The Chocolate Block er rauðvín frá vínhúsinu Boekenhoutskloof í Swartland í Suður-Afríku og þrúgublandan er forvitnilegt sambland af þrúgum sem upprunnar eru í Bordeaux og Rhone í Frakklandi. Hlutfall blöndunnar er breytilegt á milli ára en hérna í 2021 árganginum er Syrah mjög dóminerandi með um þrjá fjörðu blöndunnar og síðan koma síðan Grenache, Cinsault og Cabernet Sauvignon. Rétt eins og í norðurhluta Rhone er svo smotterí af hvítum Viognier-þrúgum bætt við, hér um 1%. Dimmrauður ávöxtur í nefinu, kirsbuber, sólber, blómaangan, kakóbaunir, þétt og fínlegt, gefið þessu víni góðan tíma til að opna sig.

80%

3.995 krónur. Góð kaup.

  • 8
Deila.