
Þegar búrgúndarvínhúsið Louis Latour ákvað að færa út kvíarnar á sínum tíma var stefnan tekin á Suður-Frakkland, nánar tiltekið festi húsið kaup á ekrum í kringum Valmoissine-klaustrið í Var við Miðjarðarhafið. Provence er vissulega ekki það svæði sem að manni dettur fyrst í hug þegar Pinot Noir er annars vegar enda þrífst hún best í „svalara“ loftslagi. Hæð ekranna yfir sjávarmáli tryggir hins vegar fín ræktunarskilyrði og endurspeglast í afskaplega ferskum og sjarmerandi ávexti. Vínið er bjart, ávöxturinn er þroskaður og flottur, rauð ber, beisk kirsuber og villtar kryddjurtir,. Þetta er vín sem ætti að smella vel að t.d. kalkún.
80%
2.999 krónur. Frábær kaup. Með kalkún eða jólapaté.
-
8