Chateau l‘Hospitalet er eitt af helstu „domaine“-vínhúsum Gérard Bertrand, stór og mikil eign á AOP-svæðinu la Clape. Svæðið er nefnt eftir La Clape sem í dag er fjallgarður, það sem Frakkar kalla „massif við Miðjarðarhafið rétt utan við borgina Narbonne. Lengi vel var Clape hins vegar sjálfstæð eyja, nefnd Insula Laci af Rómverjum, og það var ekki fyrr en fyrir um þúsund árum sem að hún byrjaði smám saman að tengjast meginlandi með jarðvegi er Aude-fljótið bar frá Pyreneafjöllum og safnaðist smám saman upp. Þarna er einstakur gróður og það er vindasamt, það er ekki marga daga á ári sem er algjört logn á la Clape. Jafnframt er þetta eitt sólríkasta svæði Frakklands. Þarna er að finna eitt sögulega elsta vínræktarsvæði Frakklands og í dag er vínrækt á 778 hektörum í AOP la Clape og þar af eru ekrur Hospitalet rúmir 90 hektarar. Eins og önnur vínhús Bertrands er vínræktin lífræn og bíódýnamísk.
Hospitalet Grand Vin er eitt þriggja rauðvín sem koma af ekrunum, miðjuvínið á milli Reserve og ofurvínsins Hospitalitas. Vínið er dökkt, ávöxtur þroskaður og djúpur, áberandi garrigue, villt rósmarín, timjan og salvía, mikil fylling í munni, ferskt og tannískt. Það er alveg hægt að loka augunum þegar maður bragðar þetta vín og ímynda sér að maður sé staddur á Hospitalet-ekrunum.
6.499 krónur. Virkilega flott suður-franskt rauðvín. Með lambi, villibráð.
-
9