
Vínhús Costa-fjölskyldunnar er í Salnés-dalnum í vínhéraðinu Rias Baixas í Galisíu. Hérna er það þrúgan Albarino sem ræður ríkjum og er þetta eitt af nokkrum mjög frambærilegum Albarino-vínu sem hafa verið að bætast við í vínbúðirnar að undanförnu. Fölgult og angan af þurrkuðum sítrus, perum og hvítum blómum. Ferskt og mjög þurrt í munni með töluverðri, þægilegri seltu. Þetta er flottur Albarino og frábært matarvín, t.d. með humar og öðrum skelfiski.
3.187 krónur. Frábær kaup.