
Primitivo er sú þrúga sem mestu skiptir í ræktun betri rauðvína í Púglíu syðst á Ítalíu en þess má geta að hún er talin vera formóðir þrúgunnar Zinfandel í Kaliforníu. Það svæði þar sem Primitivo nýtur sín hvað best er Manduria sem er á norðvesturhluta Salento-skagans í Púglíu skammt frá Jónahafi.
Eitt af helstu einkennum þess svæðis er að enn má finna þar mjög gamlan vínvið en þrúgurnar í þessu víni frá San Marzano eru af sextíu ára gömlum vínvið. Sjálf flaskan gefur strax til kynna að hér sé á ferðinni stórt og mikið vín, hún þykk og þung, rúmlega kíló á þyngd. Vínið er svarblátt, fjólublátt á lit og angan vínsins sultuð og þroskuð, rúsínur og og blóm, þykkt og ágengt, ágætlega þétt tannín. Þetta er vín sem ræður ágætlega við íslenska jólamatinn þótt meðlætið sé sætt.
5.190 krónur. Frábær kaup.
-
9