Kjúklingur með stökkum kryddjurtahjúp og kartöflur eldaðar í soði sem tekur í sig keiminn úr kryddjurtunum.
- 1 kjúklingur, bútaður niður í 6-8 bita
- 3 bökunarkartöflur, flysjaðar og skornar í bita
- 1 lúka ferskt basil, fínsaxað
- 1 búnt steinselja, fínsaxað
- 1 msk ferskt rósmarín eða 1 tsk þurrkað
- 1 msk ferskt óreganó eða 1 tsk þurrkað
- 1 msk fersk salvía eða 1 tsk þurrkuð
- 2 dl hvítvín
- 2 dl kjúklingasoð (vatn og 1/2 tsk kjúklingakraftur)
- 3 hvítlauksgeirar, pressaðir
- 1 laukur, saxaður
- 1/2 sítróna
- 2 msk hveiti
- ólívuolía
- salt og pipar
Hitið ofninn í 200 gráður.
Bútið kjúklinginn niður og saxið kryddjurtirnar.
Blandið kryddjurtunum (nema steinseljunni) saman við hveitið ásamt 1 tsk salti. Myljið smá pipar saman við.
Hitið olíu á stórri pönnu eða þykkbotna potti sem má fara inn í ofn.
Veltið kjúklingabitunum upp úr hveiti/kryddjurtablöndunni. Steikið kjúklinginn í olíunni. Þegar hann er farinn að taka á sig lit og hjúpurinn orðinn stökkur eru bitarnir teknir upp úr. Geymið.
Bætið olíu á pönnuna ef þarf og steikið kartöflubitana þar til þeir hafa tekið á sig lit. Blandið lauknum saman við og mýkið á miðlungshita. Bætið þá pressaða hvítlauknum og steinseljunni saman við ásamt örlitlu salti.
Eftir 2-3 mínútur er hvítvíninu og kjúklingasoðinu bætt saman við. Hrærið vel saman og leysið upp skófirnar sem kunna að hafa fests á botninum.
Takið af hitanum. Raðið kjúklingabitunum ofan á og setjið inn í ofninn. Eldið í um 30 mínútur eða þar til kjúklingurinn er fulleldaður og kartöflurnar orðnar mjúkar. Kreistið smá sítrónusafa saman við rétt áður en rétturinn er borinn fram.
Með þessu gott hvítvín. Hið nýsjálenska Saint-Clair Pinot Gris smellpassar.