Kjúklingur með kartöflum og kryddjurtum

Kjúklingur með stökkum kryddjurtahjúp og kartöflur eldaðar í soði sem tekur í sig keiminn úr kryddjurtunum.

  • 1 kjúklingur, bútaður niður í 6-8 bita
  • 3 bökunarkartöflur, flysjaðar og skornar í bita
  • 1 lúka ferskt basil, fínsaxað
  • 1 búnt steinselja, fínsaxað
  • 1 msk ferskt rósmarín eða 1 tsk þurrkað
  • 1 msk ferskt óreganó eða 1 tsk þurrkað
  • 1 msk fersk salvía eða 1 tsk þurrkuð
  • 2 dl hvítvín
  • 2 dl kjúklingasoð (vatn og 1/2 tsk kjúklingakraftur)
  • 3 hvítlauksgeirar, pressaðir
  • 1 laukur, saxaður
  • 1/2 sítróna
  • 2 msk hveiti
  • ólívuolía
  • salt og pipar

Hitið ofninn í 200 gráður.

Bútið kjúklinginn niður og saxið kryddjurtirnar.

Blandið kryddjurtunum (nema steinseljunni) saman við hveitið ásamt 1 tsk salti. Myljið smá pipar saman við.

Hitið olíu á stórri pönnu eða þykkbotna potti sem má fara inn í ofn.

Veltið kjúklingabitunum upp úr hveiti/kryddjurtablöndunni. Steikið kjúklinginn í olíunni. Þegar hann er farinn að taka á sig lit og hjúpurinn orðinn stökkur eru bitarnir teknir upp úr. Geymið.

Bætið olíu á pönnuna ef þarf og steikið kartöflubitana þar til þeir hafa tekið á sig lit. Blandið lauknum saman við og mýkið á miðlungshita. Bætið þá pressaða hvítlauknum og steinseljunni saman við ásamt örlitlu salti.

Eftir 2-3 mínútur er hvítvíninu og kjúklingasoðinu bætt saman við. Hrærið vel saman og leysið upp skófirnar sem kunna að hafa fests á botninum.

Takið af hitanum. Raðið kjúklingabitunum ofan á og setjið inn í ofninn. Eldið í um 30 mínútur eða þar til kjúklingurinn er fulleldaður og kartöflurnar orðnar mjúkar. Kreistið smá sítrónusafa saman við rétt áður en rétturinn er borinn fram.

Með þessu gott hvítvín. Hið nýsjálenska Saint-Clair Pinot Gris smellpassar.

 

 

Deila.