Coto de Imaz Reserva 2004

Vínhúsið El Coto er leiðandi á spænska markaðnum fyrir Riojavín þó að það eigi sér ekki langa sögu. Það var ekki fyrr en á síðari hluta síðustu aldar sem að framleiðsla undir merkjum hófst.

Coto de Imaz Reserva er frá árinu 2004, afbragðsárgangur í Rioja. Dökkt með mjög þroskuðum rauðum og svörtum berjum í nefi, kirsuberjum og krækiberjum, en þarna er líka áberandi dökkt súkkulaði og kókos úr amerískri eikinni sem vínið hefur legið í. Þetta er þétt og nokkuð tannískt vínm en tannínin eru mjúk en ekki hrjúf og falla vel að þykkum ávextinum í munni. Vín fyrir grillað nautakjöt og lambakjöt.

2.599 krónur. Góð kaup.

 

Deila.