Vina Maipo Gran Devocion Syrah/Viognier 2011

Vina Maipo er vínhús í Chile sem framleiðir all nokkur athyglisverð vín, ekki síst þegar horft er til gæða vínanna miðað við verð. Þetta rauðvín frá Maule-dalnum er blanda úr rauðu Syrah-þrúgunni og hinni hvítu Viognier. Slíkar blöndur rauðra og hvítra þrúgna eru þekktar á nokkrum stöðum í Evrópu (t.d. hin klassísku Chianti Classico) og hér er um að ræða samsetningu sem er algeng í hinum mögnuðu rauðu Cote Rotie-vínum í norðurhluta Rhone í Frakklandi. Magnið af hvítu þrúgunum er ekki mikið og þjónar þeim tilgangi að gefa víninu nýja vídd en ekki gera það ljósara.

Eikin áberandi, mikið kókos og vanilla, mokkakaffi. Þéttur sólberjaávöxtur, dökk ber, apríkósa. Viðarbragð situr eftir, smjör. Þetta er mjög núanserað og flott vín, frábær kaup á þessu verði.

2.599 krónur.

Deila.