Fuzion Chenin-Chardonnay 2010

Fuzion-vínin frá Argentínu eru framleidd af Zuccardi-fjölskyldunni, sem er eitt stærsta vínfyrirtæki Argentínu í fjölskyldueigu.

Þetta hvítvín er óvenjuleg blanda fyrir Argentínu. Allir þekkja Chardonnay en Loire-þrúgan Chenin hefur fyrst og fremst verið algeng í Suður-Afríku utan Frakklands.

Sítrus græn epli og perur í nefi. Létt og ágætlega þokkafullt með þægilegum ferskleika.

1.568 krónur. Mjög góð kaup.

 

Deila.