Les Meysonniers kemur frá Crozes-Hérmitage í norðurhluta Rhone en þar er það þrúgan Syrah sem ræður ríkjum þegar rauðvín eru annars vegar. Chapoutier er einn besti framleiðandinn á þessum slóðum og þar að auki lífrænn. Og 2009 einn magnaðasti árgangur í manna minnum á þessum slóðum rétt eins og 2007 var í suðurhluta Rhone.
Þetta er dökkt, kröftugt og lakkrískryddað vín. Þroskuð kirsuber, krækiber, svartar ólívur og vanilla í nefi. Massað og sýruríkt í munni. Virkilega flott vín. Ekta matarvín með góðri lambasteik eða langelduðum réttum.
3.295 krónur