Panna Cotta er ítalskur búðingur sem hægt er að leika sér með í margskonar útgáfum. Hér með jarðarberjum og balsamikediki.
- 3 dl grísk jógúrt
- 5 dl rjómi
- 1 dl sykur
- 3 blöð matarlím
- 1 msk vanilludropar
Pískið saman 2,5 dl rjóma, jógúrt og vanilludropa. Setjið hinn helminginn af rjómanum í pott ásamt sykrinum og hitið þar til að sykurinn hefur bráðnað og rjóminn er farinn að malla. Hrærið vel í á meðan. Takið af hitanum.
Leggið matarlímsblöðin í bleyti. Bræðið síðan í vatnsbaði. Blandið matarlíminu saman við heita rjómann. Blandið saman við rjóma- og jógúrt blönduna.
Setjið í lítil form og geymið í ísskáp í a.m.k. hálfan sólarhring.
Jarðarber
- 1 karfa af jarðarberjum
- 1/2 dl balsamikedik
- 1 msk sykur
Skerið jarðarberin í sniðar og blandið saman við sykurinn og balsamikedikið.
Takið formin úr ísskápnum. Losið varlega um búðinginn og steypið honum á disk. Setjið jarðarber og edik ofan á og í kring.