Vínfyrirtæki leggja líkt og önnur fyrirtæki í matvælaiðnaði auikna áherslu á umhverfisvæna starfshætti og framleiðslu. Í vikunni var haldin mikil, alþjóðleg samkoma í London sem ber heitið Drinks Business Green Awards þar sem veittar voru viðurkenningar til þeirra fyrirtækja er þykja skara framúr á þessu sviði.
Það var vínhúsið Emiliana frá Chile, einhver helsti framleiðandi lífrænt ræktaðra vína í heiminum sem var valið „Green Company of the Year“ að þessu sinni auk þess sem suður-afríski víniðnaðurinn fékk viðurkenningu.