Irish Coffee er líklega bæði vinsælasti kaffikokteill allra tíma og þekktasti kokteillinn úr írsku viský. Marcin Kurleto barþjónn á Uno setti saman fyrir okkur Irish Coffee í tilefni af St. Patricks Day en Uno er einn af mörgum stöðum sem er með írskar áherslur út marsmánuð af því tilefni.
- 3 cl Jameson’s
- 6 cl kaffi – tvöfaldur espresso + venjulegt kaffi
- 1 skeið púðursykur
- þeyttur rjómi
- kaffibaunir til skreytingar
Hellið viský og kaffi í glas. Hrærið sykur saman við. Toppið með rjóma og skreytið með kaffibaunum.