Ef vín eru ekki borin rétt fram skiptir litlu máli hversu góð þau eru. Vín þurfa rétt hitastig til að njóta sín og síðast en ekki síst rétt glös.
Góð vínglös eiga að vera einföld að allri gerð. Þau eiga að vera á stilk og túlípanalöguð, þ.e. belgur þeirra á að þrengjast upp. Þau eiga ekki að vera útskorin eða lituð þar sem slíkt hefur áhrif á hina sjónrænu upplifun. Loks eiga þau að vera úr kristalli, helst sem þynnstum sem einfaldar snertinguna við vínið. Þau verða að vera rúmgóð og þannig hönnuð að jafnvægi sé gott þegar búið er að hella víni í þau.
Ekki er neinn hörgull á góðum glasaframleiðendum. Það er hins vegar óumdeilt að enginn framleiðandi í heiminum hefur lagt jafnmikla vinnu í að hanna hin fullkomnu vínglös og Austurríkismaðurinn Georg Riedel. Kunnáttumenn um vín kann að greina á um vægi einstakra árganga, gæði tiltekinna vína, hvaða þrúgur henta á hvaða svæðum og raunar flest annað. Allir eru hins vegar á einu máli um að Riedel-glösin séu í sérflokki. Þetta eru þau glös sem notuð eru í helstu smökkunum og af flestum vínhúsum heims þegar að þau vilja sýna vín sín í sem bestu ljósi.
Vinum-frá Riedel er hönnuð fyrir hin kröfuharða notenda en er jafnframt á mjög sanngjörnu verði. Þetta eru hágæða kristalsglös sem þola þvott í uppþvottavél.
Það hættulega við glösin er hins vegar að eftir að maður hefur einu sinni vanið sig á þau verður ekki aftur snúið og það getur kallað á ýmsar dýrar fjárfestingar á borð við nýja glasaskápa að falla fyrir Riedel.