Það væri líklega hægt að kalla þessa uppskrift fusion enda er hér blandað saman bæði evrópskum og asískum brögðum.
Við byrjum á því að gera einfaldan kryddlög sem að laxinn er bakaður með
- 2-3 hvítlauksgeirar, pressaðir
- 1 msk Dijon-sinnep
- safi úr 1/2 sítrónu
- 1/2 dl ólífuolía
- 1 lúka fínsöxuð steinselja
- 1-2 tsk fljótandi hunang
- 1 tsk sojasósa
- salt og pipar
Blandið öllu saman. Skerið beinsnyrt laxaflak í bita og raðið í eldfast form. Dreifið kryddblöndunni yfir bitana. Eldið í ofni við 200 gráður í 15-20 mínútur. Fer eftir þykkt flaksins. Það er líka tilvalið að grilla hann.
Á meðan er meðlætið undirbúið. Fyrst vorlaukurinn
- 1 vænt búnt vorlaukur, skorinn í bita
- 1 msk rifinn engifer
- ólífuolía
- sesamolía
Hitið ólifuolíu á pönnu og steikið vorlaukinn í nokkrar mínútur. Hrærið reglulega í með sleif. Þegar að hann fer að mýkjast (tekur ekki langan tíma) er engifer sett út á pönnuna og blandað vel saman við. Eftir 1-2 mínútur er slökkt á hitanum og nokkrum dropum af sesamolíu blandað saman við.
Kartöflu- og kjúklingabaunamús
- 2 bökunarkartöflur (eða sambærilegt magn af öðrum kartöflum)
- 1 dós kjúklingabaunir
- ólífuolía
- salt og pipar
Sjóðið kartöflurnar. Hellið vökvanum frá baununum. Maukið saman í matvinnsluvél ásamt vænni skvettu eða tveimur af ólífuolíu. Bragðið til með salti og pipar.
Berið allt fram með góðu hvítvíni, t.d. Riesling frá Alsace, t.d. Riesling Hugel.