Leitarorð: Víndómar

Víndómar

Chateau Musar er eitt helsta „költ“-vín heimsins. Það kemur frá afar ólíklegum stað, Bekaa-dalnum í Líbanon um 30 kílómetra suðaustur af Beirut, og á sér mjög harðsnúinn hóp aðdáenda.

Víndómar

Þótt ótrúlegt megi virðast þá er einn stærsti ræktandi Pinot Noir-þrúgunnar í heimi vínhúsið Cono Sur í Chile. Það var á sínum tíma stofnað í kringum ræktun á Pinot Noir og hefur verið leiðandi í þróun vína úr þessari dyntóttu Búrgundarþrúgu í Chile.

Víndómar

Vínin frá stóru og frægu vínhúsunum í Bordeaux hafa hækkað gífurlega í verði síðastliðinn áratug. Sem betur fer framleiða þau flest hver einnig vín númer tvö eða „deuxiéme“-vín þar sem yfirleitt eru notaðar þrúgur af yngri vínvið.

Víndómar

Trio-línan frá Concha y Toro er eins og nafnið gefur til kynna þrenning. Í sumum tilvikum er um að ræða blöndu af sömu þrúgu frá þremur ekrum.

Víndómar

Hvítvínið Langhe Bianco frá Vajra í Piedmont á Ítalíu er eitt af þessum vínum sem fellur ekki undir neinar hefðbundnar skilgreiningar.

Víndómar

Vajra er ekki stór framleiðandi en engu að síður með bestu framleiðendum Piedmont. Nebbiolo-vín héraðsins eru þekktust fyrir vínin sem kennd eru við Barolo og Barbaresco. Þetta vín er frá Langhe (sem er yfirsvæðið) og gert úr þrúgum af yngri vínvið en þeim sem fer í Barolo-vínin.

Víndómar

Tourelles de Longueville er annað vín Chateau Pichon Baron í þorpinu Pauillac í Bordeaux. Pichon Baron hefur síðustu rúma tvo áratugina verið að endurheimta stöðu sína sem eitt af bestu vínum Bordeaux  og Tourelles sýnir vel hversu magnað þetta vín er fyrir brot af verði „stóra“ vínsins.

Víndómar

Terruyno-vínin eru meðal allra bestu vín chilenska vínrisans Concha y Toro og eru gerð úr þrúgum af tilteknum bletti innan einnar ekru.

Víndómar

Jacqueline er freyðivín sem kemur frá Frakklandi og er framleitt úr þrúgunum Colombard og Folle Blanc. Nokkuð er um liiðið frá því að það var smakkað síðast eða á þriðja ár og kom þægilega á óvart að sjá að það stendur enn fyrir sínu og hefur ekki hækkað um krónu í verði.

1 8 9 10 11 12 57