Campo Viejo Reserva 2006
Vínhúsið Campo Viejo hefur framleitt vín í Rioja í rúma hálfa öld og hafa ávallt verið traust og klassísk í stílnum. Þetta Reserva-vín er blanda úr Tempranillo, Graciano og Mazuela.
Vínhúsið Campo Viejo hefur framleitt vín í Rioja í rúma hálfa öld og hafa ávallt verið traust og klassísk í stílnum. Þetta Reserva-vín er blanda úr Tempranillo, Graciano og Mazuela.
Marques de Caceres var stofnað um 1970 af Forner-fjölskyldunni sem hafði flúið land í spænsku borgarastyrjöldinni og sest að í Frakklandi. Þar hafði hún endurreist þekkt chateau í Bordeaux en vildi snúa aftur til heimalandsins og hefja þar vínframleiðslu.
Vínsamlagið í Pfaffenheim í Alsace í Frakklandi eða Cave Vinicole de Pfaffenheim et Gueberschwihr er enn eitt dæmið um að vínsamlög bænda geta verið í fremstu röð.
Trimbach-fjölskyldan hefur komið við sögu vínræktar í Alsace í á fimmtu öld. Það var hins vegar „ekki fyrr“ en á nítjándju öld sem að vínin frá Trimbach slógu rækilega í gegn þegar Fréderic-Emil Trimbach fór með nokkur sýnishorn á heimssýninguna í Brussel árið 1898.
Casa Concha-línan frá Concha y Toro í Chile eru alla jafna kröftug og mikil vín. Þetta vín úr þeirri línu er Cabernet Sauvignon frá Maipo-dalnum fyrir utan Santiago blandað smá Carmenere og Petit Verdot.
Drostdy-Hof eru vín frá Suður-Afríku sem yfirleitt eru ágæt kaup og hér er það Shiraz-þrúgan sem er notuð.
Þetta er ungur og ferskur Cabernet Sauvignon úr Classico-línunni frá Canepa en það eru ódýrustu vínin sem þetta vínhús í Chile framleiðir.
Þetta Barossa-rauðvín frá Peter Lehmann er eitt af þessum yndilegu áströlsku Shiraz-vínum, sem eru svo þétt og þykk að það liggur við að hægt sé að borða þau með skeið.
Pinot Grigio-þrúguna eða Pinot Gris eins og hún heitir á frönsku tengja flestir við Ítalíu eða Elsass í Frakklandi. Hér er hún hins vegar í útgáfu frá Chile.
Blanc de Blancs frá Raimat er hvítvín frá Katalóníu á Spáni, nánar tiltekið svæðinu Costers de Segre. Þetta er blanda úr Chardonnay og Albarino.