Santa Digna Rosado 2008

Þetta rósavín er frá Chile, nánar tiltekið Santa Digna, vínhúsi Spánverjans Miguel Torres þar í landi. Þetta er hreint Cabernet Sauvignon en þegar maður þefar af víninu þarf maður eiginlega að lesa á flöskumiðann aftur til að sannfæra sig um að Torres hafi ekki líka notað rifsber.

Liturinn er dökkbleikur og í nefinu er þykk og kröftug angan af rifsberjum og rifsberjasaft. Vínið hefur þokkalega fyllingu og berjakeimurinn heldur áfram út í gegn. Ágætlega ferskt og sýrumikið.

2.099 krónur

 

Deila.