Pares Balta kvöld á Holti

Joan Cusiné frá einu athyglisverðasta vínhúsi Pares Balta í Pénedes á Spáni verður á Íslandi í næstu viku. Af því tllefni hefur verið skipulagður sérstakur hátíðarkvöldverður á Hótel Holti föstudagskvöldið 15. október. Þar verður boðið upp á fjögurra rétta máltíð með vínum frá Pares Balta og er verðið fyrir matseðilinn með vínum 7.900 krónur.  Á seðlinum eru „saltfisksflögur í kræklingasafa og ólívukex“, „humar- og hörpuskelsspjót og ávaxtalegin bleikja ásamt eikuðu soði“, „rauðvínsnuddaður nautahryggur og nýmóðins vínviður“ og loks „perueldgos undir stökku hrauni í grennd við ísjökul“.

Vínótekið heimsótti Pares Balta í sumar og má lesa nánar um þetta flotta vínhús með því að smella hér.

Deila.