Tom Collins er þekktur ginkokkteill, sá þekktast fyrir utan gin og tónik. Styrmir Örn í Perlunni setti hins vegar saman þetta Vodka Collins afbrigði af honum.
5 cl vodka
2 cl sítrónusafi
1 msk flórsykur.
Setið í kokkteilhristara ásamt klaka og hristið. Hellið í long drink glas fyllt með klaka og toppið upp með sódavatni.