Tenuta Moraia Pietracupa Bolgheri 2007

Víngerðarsvæðið Bolgheri við vesturströnd Toskana á Ítalíu dregur nafn sitt af litlu þorpi sem er kennt við fornan kastala. Það hefur verið með „heitustu“ svæðunum á Ítalíu síðustu árin ekki síst vegna risavaxinna ofurvína á borð við Sassicaia sem hafa skipað sér í hóp eftirsóttustu vína Ítalíu.

Tenuta Moraia er snoturt og vel gert Bolgheri-vín. Í nefi gýs upp mjög þroskaður, dökkur og kryddaður ávöxtur með plómuböku, kanil og gúmmí en einnig angan er minnir á rjúpnablóð. Mjúkt og mildara en maður á von á í munni með þægilegum tannínum og ágætri lengd.

3.199 krónur.

 

Deila.