Chateau Grossombre de Saint Joseph 2004

Chateau Grossombre de Saint-Joseph er eitt af mörgum vínhúsum í safni André Lurton en Lurton-fjölskyldan er ein sú þekktasta og áhrifamesta í Bordeaux. Vínið er blanda til helminga úr annars vegar Cabernet Sauvignon og hins vegar Merlot.

Þetta er gott dæmi um vel gerðan, ódýran Bordeaux og endurspeglar vínið ágætlega einkenni héraðsins. Í nefi sólber og plómusulta, Viður og vanilla úr eikinni og smá reykangan og leður. Vel uppbyggt með þéttum og mjúkum tannínum í munni.

2.295 krónur. Góð kaup.

 

Deila.