Castillo Perelada 5 Fincas Reserva 2005

Þetta vín frá Perelada í Empordá í Katalóníu heitir 5 Fincas sem vísar til þess að vínþrúgarnar eru blanda af öllum 5 ekrum Perelada. Þetta er sömuleiðis blanda úr sex þrúgum. Merlot er ríkjandi (40%) en einni eru notaðar í blönduna Cabernet Sauvignon, Garnacha, Syrah, Cabernet Franc og Merlot.

Vínið sjálft er magnað, ekki síst í ljósi þess hvað það kostar. Dökkt og þykkt með ristuðum kaffibaunum og súkkulaði í bland við samþjappaðan, sætan plómu- og sólberjaávöxt. Ristað og kryddað, þarna er reykur og negull, massað frá upphafi til enda en sömuleiðis silkimjúkt. Vín fyrir gott kjöt, hvort sem það er naut, lamb, önd eða villibráð.

2.999 krónur. Frábær kaup.

 

Deila.