Secoo-Bertani Valpolicella Valpantena 2007

Vínið Secco-Bertani er eitt af þeim vínum sem keppir um titilinn fyrsta ripasso-vínið. Við gerð þeirra er þykkum, sætum massa, sem verður eftir við gerð Amarone-vína,  blandað saman við ungt Valpolicella-vín og gerjunin kemst í gang á nýjan leik, Að því búnu er vínið látið þroskast á tunnum. Þessi aðferð er kölluð ripasso.

Þurrkuð kirsuber eru áberandi í nefi ásamt súkkulaði og keim af blómum,  vínið er mjúkt  sýrumikið sem gefur því ferskleika og lengd. Með osso bucco, nautakjöti og lambi.

2.990 krónur.

 

Deila.