Fuzion Shiraz-Malbec 2010

Fuzion-vínin frá Zuccardi-fjölskyldunni í Argentínu hafa víða vakið mikla athygli fyrir ágætis vín á mjög góðu verði. Í Kanada urðu þessi vín til dæmis metsöluvín á ótrúlega skömmum tíma en það var einmitt þetta vín, rauðvín blandað úr þrúgunum Shiraz og Malbec, sem ruddi brautina fyrir um fjórum árum.

Fuzion-vínin voru algjörlega óþekkt á þessum tíma. Fljótlega eftir að þau komu í sölu í Ontario-fylki byrjaði að birtast umfjöllun um að þarna væri nú eitthvað spennandi á ferðinni, einstaklega frambærileg vín miðað við verð. Áður en nokkur vissi af voru þau komin á þvílíkt flug að annað eins hafði ekki sést í vínsögu Kanada. Þetta gaf síðan vínunum góðan stökkpall út um allan heim og nú nýlega komu þau sem sagt til Íslands.

Þetta er enn mjög ungt vín, þurrt með mildum, léttkrydduðum sólberja- og  kirsuberjaávexti í nefi. Mild tannín, létt og mjúkt í munni. Þægilegt og ljúft en ekki karaktermikið.

1.599 krónur. Góð kaup.

 

Deila.