Chapoutier Marius 2009

Flest bestu vínhúsin framleiða ekki einungis dýr vín í litlu magni heldur einnig ódýrari vín fyrir fjölmennari markaði. Chapoutier er eitt virðulegasta vínhúsið í Rhone en þetta vín frá þeim, sem byrjað var að selja á þessu ári, kemur hins vegar frá Pays d’Oc sem er svæði innan Miðjaðarhafshéraðsins Languedoc-Roussillon.

Flöskumiðann skreytir mynd af virðulegum eldri frönskum herramanni, en það mun vera sjálfur Marius, afi Michel Chapoutier, sem nú heldur um taumana.

Marius er blanda úr tveimur helstu rauðvínsþrúgum Suður-Frakklands, Grenache og Syrah. Sætur, sultaður ilmur, rauð ber og vanilla. Þetta er mjúkt vín, ávöxturinn töluvert sætur og mildur, greinilega ætlað að höfða til yngri kynslóða (25-35 ára) sem eru vanari sætari drykkjum. Ekki slæmt sem slíkt en nýtur sín best örlítið kælt.

1.799 krónur

70%
  • 7
Deila.