Navarra er áhugavert vínhérað á Spáni staðsett norður og austur af Rioja. Vínin þaðan eru oft áþekk Rioja-vínunum í stíl en og uppbyggingu en aðrar þrúgur eru ríkjandi sem ljær þeim annan blæ.
Fortius Chardonnay er frá svæði sem heitir Tierra Estella og er í norðvestur-hluta Navarra alveg við nyrstu mörk Rioja. Þetta er ferskt, sítrusmikið hvítvín, sítrónur og lime í nefi, sítrónubörkur og gul epli auk þess sem vottar fyrir steinefnum. Þægilega hressileg sýra í munni.
1.890 krónur. Mjög góð kaup.