Sauvignon Blanc er sú þrúga sem víngerðarmenn á Nýja-Sjálandi eru hvað þekktastir fyrir að nota. Það er hins vegar önnur norður-evrópsk þrúga sem virðist una sér afskaplega vel við nýsjálenskar aðstæður, nefnilega hin þýska Riesling.
Villa Maria Riesling Private Bin 2010 er virkilega aðlaðandi hvítvin, suðrænn ávöxtur í nefi s.s. ástaraldin með sætri sítrusangan, limeberki og þykkri steinolíu, sem er merkilegt nokk eitt af lykileikennum Riesling-þrúgunnar. Þykkt með sætum ávexti og ferskri sýru. Hentar vel sem fordrykkur með asískum réttum eða réttum þar sem asísk áhrif eru áberandi. Hvers vegna ekki t.d. með engiferkjúkling með ananas og kúrbít.
2.629 krónur. Góð kaup.