Það eru tvær þrúgur sem mestu máli skipta í rauðvínum Piemont. Nebbiolo og Barbera. Sú síðarnefnda á það til að vera vanmetin enda eru Barbera-vín oft mjög ung og létt – þau geta hins vegar líka verið alvöru þungaviktarvín. Það á við um þetta Barbera-vín frá vínhúsinu G.D. Vajra. Þrúgurnar koma af tveimur ekrum og er önnur þeirra Barolo-ekran Bricco delle Viole þar sem Vajra-fjölskyldan ræktar enn Barbera á gömlum vínvið innan um Nebbiolo-þrúgurnar sem notaðar eru í Barolo-vínin.
Fallega fjólublátt með djúpum lit. Dökk ber, kirsuber, krækiber í nefi, þroskuð, sæt, krydduð, nokkuð eikað og kryddað, tóbakslauf. Þétt og fókuserað í munni, kröftug tannín gefa víninu strúktúr, það er langt, míneralískt, sýrumikið, með stöðugum stíganda. Yndislegt vín.
3.750 krónur. Frábær kaup.