Domaine de Malandes Petit Chablis 2013

Flest vínhúsin í Chablis í norðurhluta Búrgund eru ekkert afskaplega stór og Domaine de Malandes með sína 28 hektara er því nokkurn veginn í millistærð. Vínhúsinu hefur verið stjórnað um árabil af hinni rösku Lyne Marchive en nána má lesa um Domaine de Malandes hér.

Fölgult og ljóst á lit, tær og skörp angan, sítrusmikil og fersk, sætar ferskjur. Skarpt, fókuserað með góðri, ferskri sýru og seltu í lokin.

2.599 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.