Hito 2014

img_2531Hito er yngsta vínið eða „Crianza“ frá nýbylgjuvínhúsinu Cepa 21 í Ribera del Duero á Spáni. Þið getið lesið nánar um þetta hérað og Cepa 21 með því að smella hér. Með yngsta víninu er átt við að það hefur ekki legið nærri því eins lengi í eikartunnum og „eldri“ vín á borð við Reserva.

Vínið er mjög dökkt á lit, djúpur, svarfjólublár litur, í nefi svartir ávextir, sólber, krækiber, töluvert míneralískt, mikið af jörð, ekki síst í byrjun. Kraftmikið, djúpur og flottur ávöxtur, mjúkt. Vín fyrir rautt kjöt.

90%

2.699 krónur. Frábær kaup á því verði. Hverrar krónu virði.

  • 9
Deila.