Þetta er lífrænt ræktað rauðvín frá Miðjarðarhafssvæði Frakklands, nánar tiltekið héraðinu Cotes de Rousillon, og blanda af dæmigerðum Miðjarðarhafsþrúgum: Syrah, Grenache, Carignan og Mourvédre.
Dökkur, þroskaður berjaávöxtur í nefi, plómur, púðursykur, rakt vindlatóbak en einnig karamella og vanilla úr eikinni. Þetta er flott vín frá Pujol, alþjóðlegt og smart.
2.599 krónur. Góð kaup.