Árlegt Íslandsmeistaramót barþjóna var haldið á Brodway á sunnudagskvöld og var mótið hið glæsilegasta að venju. Fulltrúar birgja kynntu margvíslegar nýjungar og margir af bestu barþjónum landsins settu saman kokkteila í keppni um Íslandsmeistaratitilinn.
Þegar upp var staðið var það Guðmundur Sigtryggsson á Hilton Nordica sem stóð uppi sem sigurvegari með drykkinn Father of the Bar. Guðmundur er gamalreyndur í faginu og mun hann keppa fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti barþjóna í Singapore síðar á árinu.
Í öðru sæti var Tómas Kristjánsson á veitingastaðnum Silfri með drykkinn Space og í því þriðja Andri Davíð Pétursson á Vox Restaurant með drykkinn Skyrgámur.
Hér að neðan má sjá myndir frá keppninni.