William Févre Chablis 2008

William Févre hefur verið þekkt nafn í Chablis allt frá því að hann sá um sína fyrstu uppskeru árið 1959. Hann var þó langt í frá óumdeildur, hann fór ótroðnar slóðir og notaði eik í ríkari mæli en flest önnur vínhús í Chablis. Hefðbundin Chablis-vín eru yfirleitt óeikuð.

Árið 1998 seldi hann vínhús sitt og var kaupandinn kampavínshúsið Henriot, sem einnig ´á nú annað þekkt Búrgundarhús, nefnilega Bouchard Pére. Ein af breytingunum sem hefur fylgt Henriot er að snarlega hefur verið dregið úr eikarnotkun.

William Févre Chablis 2008 er þéttur, þykkur og klassískur Chablis. Mikill og ferskur ávöxtur með sætum sítrus og Granny Smith-eplum. Slétt og stálkennt með míneralískum tónum. Líflegt og lifandi, gott matarvín.

Reynið t.d. með sjávarspörfuglum á spjóti.

2.889 krónur.

 

Deila.