Vínin frá Montecillo hafa verið fastagestir í hillum vínbúðanna um árabil og Crianza-vínið skartar nú skærum flöskumiða í stað þess dökkvínrauða sem lengi prýddi flöskurnar. Innihaldið er hins vegar það sama, Rioja-vín í nútímalegum stíl þar sem frönsk eik er notuð en ekki amerísk.
Montecillo Crianza 2007 er dökkt, angan af þroskuðum skógarberjum, vanillu og reyk. Jafnvel smá „fjós“. Í munni er vínið mjúkt með mildum tannínum og þokkalegri lengd. Það borgar sig að opna vínið með um hálftíma fyrirvara.
1.899 krónur. Mjög góð kaup.