Þessi Sauvignon Blanc er frá Weststeiermark en það eru nokkrar ungar víngerðarfjölskyldur sem tekið hafa sig saman og flytja út vín undir nafninu Masters of Schilcher.
Steiermark er mjög athyglisvert víngerðarsvæði í suðurhluta Austurríkis og ekki síst eru það hvítu Sauvignon Blanc vínin þaðan sem vekja vaxandi athygli utan Austurríkis. Þetta er ágætis eintak. Angan fersk og skörp, þarna má greina aspas, niðursoðnar perur og perubrjósykur. Þykkur og sætur ávaxtahjúpur í munni, djúpt en einnig skarpt, hvítur blómakeimur situr eftir í munni í lokin.
3.333 krónur.