Olivier Leflaive Bourgogne Cuvée Margot 2007

Þótt Cuvée Margot sé skilgreint sem AOC Bourgogne þá koma þrúgurnar í vínið allar af mismunandi ekrum af svæðinu Cote de Beaune.

Vínið byrjar nokkuð skarpt í nefi og sýrumikið með dökkum berjum, appelsínuberki og eik. Það er ekki langt en hefur þokkalega dýpt og breidd. Hefur gott af að anda aðeins og koma þá skógarber, jörð og krydd betur í ljós og mynda elegant og klassískan búrgundarprófil. Vel gert og þægilegt.

Með góðu kjöti og réttum á borð við kjúklingi með dijon og estragon eða þá franska estragonkjúklingnum.

2.990 krónur

 

Deila.