Uppáhaldsréttunum fagnað

Það eru 40 þjóðþekktir Íslendingar sem leggja til uppskriftir í bókina Uppáhaldsrétturinn minn og því kannski ekki furða að mörg þekkt andlit hafi sést í útgáfuhófi sem haldið var í Þingholti á fimmtudagskvöld. Bókin er samvinnuverkefni þeirra Maríu Björk Sverrisdóttur söngkonu og Friðgeirs Inga Eiríkssonar yfirmatreiðslumeistara á Hótel Holti. Gestir gátu smakkað á nokkrum réttum úr bókinni og borið saman leyndarmál sín úr eldhúsinu.

Deila.