Sveppasósa er auðvitað klassík með bæði nauti og lambi. Þetta er einföld og góð uppskrift að góðri sveppasósu.
- 10 myndarlegir sveppir, grófsaxaðir
- 25 g smjör
- 2,5 dl rjómi/matreiðslurjómi
- 1 dl hvítvín
- 3 hvítlauksgeirar, saxaðir
- 1 msk ferskt timjan
- salt og pipar
Bræðið smjörið í potti. Brúnið sveppina á miðlungshita, bætið hvítlauknum og timjan saman við eftir 2-3 mínútur. Steikið áfram á miðlungshita í 5 mínútur. Hellið hvítvíni út og sjóðið niður þar til hvítvínið hefur gufað upp að mestu. Bætið rjómanum út á og látið malla þar til að sósan hefur þykknað vel. Bragðið til með salti og pipar.