Júdas – páskabjórinn 2013

Eftir að hafa sett á markað frábæra jóla- og þorrabjóra, stóra bjóra sem eru í senn vandaðir, bragðmiklir og nýjir á Ísland heldur Borg áfram að brjóta blað í sögu bjórgerðar á Íslandi. Fyrir páskana í fyrra var bruggað belgískt öl og er stefnan sett á svipaðar slóðir í ár, en með mun stærri bjór.

Hinn belgíski bjórstíll quaddrupel er ekkert lamb að leika sér við. Orðið „Quad“ hefur litla merkingu fyrir utan það að hér er stórt öl á ferð, öl sem meint er að vera stærra en „dubel“ og „tripel“. Þessi nöfn eru einna helst tengd við Trappist bjóra, þ.e.a.s. bjóra sem eru bruggaðir af munkum úr Trappist-reglunni en ber þó oft í góma í belgískri ölgerð. Dubel er öl sem er dökkt að lit, í kringum 6-8% í áfengi. Tripel er öllu stærri, ljóst öl, og er í kringum 9%. Fyrir ofan þessa er Quadrupel, oftast dökkur að lit, í kringum 10-11% í áfengi.

Quadrupel er gamall bjórstíll en stíll sem hefur verið á hraðri uppleið á síðustu 20 árum og mikið talað um. Það eru ekki bara vinsældum La Trappe að fagna heldur einnig sjaldgæfum bjórum eins og t.d. Westvleteren 12, sem tilheyrir sama bjórstíl. Sá bjór er afar eftirsóttur og má segja að hinn belgíski quadrupel er einn af þeim bjórstílum sem aðdáendur belgísks bjórs halda vart vatni yfir.

Þessi pistill snýst hinsvegar ekki um bjórstílinn heldur Júdas sjálfan. Júdas hefur ákveðna sérstöðu. Það er ekki bara hið gríðarlega háa magn áfengis heldur einnig sú staðreynd að hér er á ferðinni innlend framleiðsla sem á sér enga hliðstæðu. Aldrei hefur verið bruggað belgískt öl af þessari stærðargráðu áður hér á landi og er bjórinn mikill fengur fyrir íslenska bjórmenningu. Það verður líka að minnast á að Júdas er ekki bara mjög gott afbrigði af belgísku öli, heldur einnig bjór sem stenst frummyndinni fyllilega snúning.

Júdas er dökkbrúnleitur, með þunna froðu. Lyktin er mögnuð og margslungin. Hér er kandís, malt, þurrkaður ávextir, jafnvel rúsínur. Á tungu er hann mikill um sig og greinilegt að hér er ekkert venjulegt öl á ferð. Þetta er öl sem ber að njóta, helst á köldu vetrarkvöldi. Hinsvegar ber að taka fram að hér er um afar bragðgott öl að ræða, og það að stoppa eftir einn er afar erfitt, og verður að teljast að fyrir svona mikinn bjór að þá er hér afar gott dæmi um bjór sem gæti höfðað til margra sem eru að feta sig út fyrir þægindarammann.

Það er ekki mikið eftir af þessum snilling í hillum vínbúðanna, og því er ráð að drífa sig strax og smakka Júdas. Þrátt fyrir svik Júdasar þess sem bjórinn er nefndur eftir þá er hér á ferðinni öl sem á ekki eftir að svíkja neinn.

Hér má svo lesa um hina páskabjórana.

 

Deila.