Víetnamskar grísakótilettur eða Suon Nong eru frábærar á grillið eftir að hafa legið í lemongrass-marineringunni. Þær eiga að vera mjög þunnar og því þarf að berja þær aðeins til með kjöthamri eða þá að biðja starfsfólkið í kjötborðinu um að skera niður mjög þunnar sneiðar.
Kryddlögurinn:
- 1 dl sykur
- 1 dl vatn (sjóðheitt)
- 2 lemongrass-stönglar
- 2 skalottulaukar
- 10 hvítlauksgeirar
- 2 msk olía, t.d. jarðhnetuolía
- 2 msk sojasósa
- 2 msk fiskisósa
- 1 msk hrísgrjónaedik
- 1 msk mulinn pipar
Setjið sykurinn í pott og hitið á miðlungshita þar til að hann hefur bráðnað alveg. Hellið þá sjóðheitu vatninu saman við og hrærið í þar til að sykurkaramellan hefur leysts alveg upp í vatninu. Leyfið að kólna.
Maukið allt vel saman í matvinnsluvél.
Berjið grísakótiletturnar vel til með kjöthamri, þær eiga að vera um 1 sm þunnar. Látið kótiletturnar í marineringuna og geymið í kæli í að minnsta kosti klukkustund, held lengur.
Grillið eða steikið á pönnu. Berið fram með hrísgrjónum.