Þessi uppskrift er í anda sjávarþorpa Suður-Indlands, fiskurinn eldaður í þykku og bragðmiklu kókos-curry.
- 2-3 flök af þorski eða ýsu
- 1 sítróna
- 1 laukur, saxaður
- 3 sm engiferrót, flysjuð og rifin
- 1-2 belgir af grænum chili, fræhreinsaðir og saxaðir
- 1 dós kókósmjólk
- 2 msk kókosmjöl
- 1/2 tsk túrmerik
- 1/2 tsk cumin
- 6-8 curry-lauf eða lúka af söxuðum kóríander
- salt og pipar
Skerið flökin í bita, setjið á fat og pressið safann úr sítrónunni yfir. Saltið og piprið og látið standa í um hálftíma.
Steikið flökin í olíu um 2-3 mínútur á hvorri hlið, takið af pönnunni og geymið. Bætið olíu á pönnuna og steikið laukinn ásamt rifnu engiferrótinni, chili-piparnum, túrmerik-kryddinu og curry-laufunum þar til hann er orðinn mjúkur.
Hellið kókosmjólkinni á pönnuna ásamt cumin og kókosmjölinu og látið malla á vægum hita í um tíu mínútur eða þar til sósan fer að þykkna. Setjið þá fiskbitana aftur út í og sjóðið í sósunni þar til þeir hafa hitnað í gegn, rúma mínútu eða svo.
Setjið fiskbitana á fat og hellið sósunni yfir. Berið fram með Basmati-grjónum.
Létt og ferskt hvítvín með t.d. Jacob’s Creek Three Vines eða Peter Lehmann Chardonnay.