Það má segja að frönsku ostakökurnar, Gateau au fromage, séu fyrirmynd hinnar bandarísku Cheesecake. Frakkar nota yfirleitt ferskan ost sem heitir Fromage Blanc en hér er notaður Mascarpone.
Botninn:
- 100 g smjör
- 200 g Digestive-kexkökur
- 25 g sykur
Bræðið smjörið. Maukið kexið í matvinnsluvél ásamt sykrinum. Bætið smjörinu við og hrærið saman. Dreifið í botninn á 25 sm smelluformi.
Fylling:
- 500 g Mascarpone-ostur
- 150 g sykur
- 2 vanillustengur, skerið í tvennt og skafið innanúr
- 1 dós sýrður rjómi (18%)
- 3 egg
- 1 eggjarrauða
- safi og rifinn börkur af einni sítrónu
Hrærið Mascarpone, sýrðan rjóma, sykur og vaniluna saman. Bætið næst eggjunum og eggjarauðunni út í og hrærið vel saman. Blandið loks sítrónusafanum og berkinum smám saman út í.
Berjahlaup
- 100 g ber, t.d. rifsber eða bláber
- 100 g sykur
- 2 dl vatn
- 2 blöð matarlím
Sjóðið ber, sykur og vatn saman í um fimm mínútur. Bleytið upp matarlímsblöðin og bætið þeim síðan út í berjablönduna. Leyfið að kólna.
Aðferð:
Smyrjið lagi af berjasultu yfir botninn (sömu tegund af berjum og þið notið í hlaupið, t.d. rifsberjasultu) og hellið næst ostakreminu yfir. Bakið í um 45 mínútur við 180 gráður. Leyfið kökunni að kólna og smyrjið loks berjahlaupinu yfir. Geymið í ísskáp þar til hún er borin fram.