Montrouge Sauvignon Blanc 2009
Þetta er suður-franskt hvítvín frá Languedoc úr þrúgunni Sauvignon Blanc en aðstæður þar gera að verkum að vínin eru oft í stílnum eins konar blanda af hinum klassísku frönsku vínum og vínstíl Nýja heimsins.
Þetta er suður-franskt hvítvín frá Languedoc úr þrúgunni Sauvignon Blanc en aðstæður þar gera að verkum að vínin eru oft í stílnum eins konar blanda af hinum klassísku frönsku vínum og vínstíl Nýja heimsins.
Vínhúsið Baron de Ley, fyrir utan þorpið Mendavia syðst í Rioja við mörkin að Navarra, er dæmigert fyrir nýbylgjuna í Rioja. Þetta er vínhús í Chateau-stíl byggt upp í kringum gamalt Benediktína-munkaklaustur. Vínið Finca Monasterio kemur einmitt af ekrum klaustursins.
Alpha-línan frá Montes er Íslendingum að góðu kunn enda hafa þessi vín sannað sig sem einhver þau jafnbestu miðað við verð sem Chile býður upp á. Montes var meðal frumkvöðlanna er hófu ræktu í Colchagua-dalnum en það er nú talið eitt besta Cabernet-svæði Chile ásamt hinu gamalgróna og klassíska Maipo.
Þetta Toskana-vín er frá vínhúsinu Piccini og er flokkað sem IGT enda byggist það ekki eingöngu á hinni hefðbundnu Sangiovese-þrúgu heldur einnig frönsku Bordeaux-þrúgunum Cabernet Sauvignon og Merlot.
Klaustrið Badia a Passignano gerir þetta vínhús að þeim tignarlegri í Toskana og Chianti Classico-vínið sem markgreifinn Antinori framleiðir á ekrum klaustursins er ekkert slor.
Þessi Chablis frá Domaine de Malandes er ferskur og aðlaðandi og ágætt dæmi um hvers vegna vínin frá Chablis njóta jafnmikillar hylli og raun ber vitni.
Brio de Cantenac er „annað“ vín Chateau Cantenac Brown, þ.e. vín af þrúgum sem ná ekki flokkun í „stóra“ vínið yfirleitt vegna þess að um er að ræða yngri vínvið á ekrunum og þann hluta uppskerunnar sem nær ekki fyllsta þroska.
Chateau Grossombre de Saint-Joseph er eitt af mörgum vínhúsum í safni André Lurton en Lurton-fjölskyldan er ein sú þekktasta og áhrifamesta í Bordeaux. Vínið er blanda til helminga úr annars vegar Cabernet Sauvignon og hins vegar Merlot.
Mixtus er ódýrasta línan frá argentínska vínhúsinu Trivento og nafnið vísar til þess að vínin er ávallt blanda úr tveimur þrúgum, í þessu tilviki Merlot og Malbec.
Suður-Afríka lætur stöðugt meira að sér kveða og vínin þaðan koma oft verulega á óvart. Þetta er með ódýrari vínunum á markaðnum og í þessum dæmigerðu umbúðum sem njóta svo mikilla vinsælda með exótísku nafni og flöskumiða.