Trivento Coleccion Fincas Sauvignon Blanc 2008
Þrúgan Sauvignon Blanc er ekki mjög algeng í vínum frá Argentínu, hvítvínin þaðan eru oftast úr annaðhvort hinni frönsku Chardonnay eða þá Torrontes, sem er einskonar þjóðarþrúga Argentínu. Sauvignon Blanc frá Argentínu er oft „franskari“ en t.d. vín úr sömu þrúgu sem framleidd eru handan Andes-fjalla í Chile.