Stonewell Shiraz 2008
Stonewell er toppvínið frá Peter Lehmann og jafnframt með betri Shiraz-vínum Ástralíu. Þrúgurnar sem notaðar eru í Stonewell koma af mjög gömlum vínvið í vesturhluta Barossa og eru sumar plönturnar meira en hundrað ára gamlar.
Stonewell er toppvínið frá Peter Lehmann og jafnframt með betri Shiraz-vínum Ástralíu. Þrúgurnar sem notaðar eru í Stonewell koma af mjög gömlum vínvið í vesturhluta Barossa og eru sumar plönturnar meira en hundrað ára gamlar.
Santa Cristina vínin frá Antinori í Toskana á Ítalíu eiga sér langa sögu en þetta vín kom fyrst á markaðinn ár 1946. Vínin hafa þróast mikið í gegnum árin og rauðvínið er nú blanda af Toskana-þrúgunni Sangiovese og frönsku þrúgunum Cabernet Sauvignon Syrah og Merlot.
Bordeaux er þekktast fyrir rauðvínin sín og margir gleyma að þar eru líka framleidd ansi mörg fersk og fín hvítvín úr þrúgunum Sauvignon Blanc og Sémillon.
Marques de Riscal er eitt af þeim Rioja-vinum sem eiga sér hvað lengsta sögu á íslenska markaðnum enda er um að ræða eitt helsta vínhús svæðisins
Gerard Bertrand er magnað vínhús í Languedoc-héraðinu í Suður-Frakklandi. Þau voru fyrst kynnt í stórri smökkun hér á landi í vor og síðan hafa verið að tínast inn vín í vínbúðirnar sem eru hvert öðru betra og sýna að Frakkland á enn mörg spil uppi í erminni í samkeppninni við Nýja heiminn.
Vínhúsið Il Poggione í þorpinu Sant’Angelo in Colle í Montalcino á Ítalíu er eitt af þeim bestu á sínu svæði og það segir ekki litla sögu. Þetta er með allra bestu vínsvæðum Ítalíu og óvíða nær Sangiovese-þrúgan hærri hæðum en á ekrunum í kringum Montalcino.
Villa Antinori eru vín frá Antinori á Ítalíu sem endurspegla yfirleitt ágætlega uppruna sinn frá Toskana. Þetta hvítvin er blanda úr þrúgunum Trebbiano, Malvasía og Pinot Bianco.
Vínhúsið Carmen í Chile var stofnað um miðja nítjándu öld og hefur löngum verið með helstu framleiðendum landsins og á nú ekrur á flestum helstu ræktunarsvæðum landsins.
Monti Garbi er vín frá Castagnedi-bræðrunum í Valpolicella á Norður-Ítalíu. Það er flokkað sem Valpolicella Classico Superiore og er þar að auki Ripasso-vín.
Vínsamlag bændanna í Pfaffenheim er traustur og góður framleiðandi Alsace-vína